í bókinni eru spurningar sem maður er hvattur til að svara og ég ætla að gera það hér (allavega sumum þeirra).
í mínum huga (eftir að hafa lesið eitt og annað) er meðvirkni þegar maður er orðin of upptekin við að stjórna og hafa áhyggjur af lífi annarra, þannig að það hefur neikvæð áhrif á mitt líf. maður hefur of mikla ábyrgðarkennd gagnvart öllum mögulegum sem ómögulegum hlutum, og oftar en ekki eru það hlutir/atriði sem maður hefur enga aðstöðu til að hafa áhrif á. maður hefur áhyggjur af því hvernig foreldrar, systkyni, vinir lifa sínu lífi. maður gerir allt of miklar kröfur til sjálfs sín, kröfur sem maður myndi ekki ætla neinum öðrum að geta uppfylt. á sama tíma er sjálfsálitið í algjöru lágmarki og maður er alltaf að reyna að auka við sjálfsálitið sitt með því að hjálpa öðrum með þeirra verkefni. vera góður, vera alltaf til staðar fyrir alla. en á sama tíma lætur maður sjálfan sig og sínar þarfir sitja á hakanum.
ég lærði fyrir nokkrum árum síðan að það er ekki á mína ábyrgð hvernig foreldrar mínir og systur lifa. ef þau kjósa að drekka, þá verða þau bara að gera það. þetta var mjög erfitt fyrir mig, og ég þurfti að draga mig meira út úr stórfjölskyldunni til að geta sætt mig við þetta. stundum velti ég fyrir mér hvort þetta hafi verið rétt ákvörðun, því að ég upplifi mig oft enn einangraðri en áður. en ég held að það sé ástæða fyrir því og hún er sú að þetta var bara eitt atriði af mörgum sem ég þarf að taka á. ég er rétt að byrja í þessari löngu göngu.
Bloggar | 10.3.2008 | 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 10. mars 2008
Bloggvinir
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar